Bárujárn hefur í gegnum tíðina verið algengasta þakklæðningin á Íslenskum byggingum. Stjörnublikk framleiðir 76/18 bárujárn til þakklæðninga úr lituðu og ólituðu aluzinki. Bárujárnið er framleitt í staðlaðri breidd en plötulengdir eru samkvæmt óskum kaupenda. Bárujárnið okkar er úr aluzinki, bæði ólituðu og lituðu, ásamt magnelis galvaniseruðu stáli. Stjörnublikk flytur inn allt hráefni til framleiðslunnar frá viðurkenndum framleiðendum og tryggir þannig gæði og hagstætt verð.

Á bárujárninu frá okkur er vatnslás sem þjónar tvennum tilgangi. Annarsvegar þá lyftir hann bárunni að aftan og rífur þar með þann hárpípukraft sem annars myndi soga inn vatn þegar járnið liggur þétt saman, og báran leggst betur saman að ofan í lágbárunni að ofan. Í öðru lagi þá grípur vatnslásinn það vatn sem hugsanlega gæti blásið yfir báruna og það rennur niður eftir lásnum. Við höfum yfir sex ára reynslu af þessu hér heima og um í um 30 ár í Finnlandi. Járnið frá okkur hefur verið sett á stærðar þök á skemmum sem eru með járnið á lektum og opið undir járnið að innan og þar hefur ekkert vatn komið inn, jafnvel ekki í verstu veðrum. Hver plata dekkar 106cm á breiddina og er heildarbreytt plötu 113cm

Aluzinkið okkar er með gæðin DX51-AZ185 sem þýðir að járnið er húðað með alusink í þykktinni 185mg per m2. Efnisþykktin sjálf er 0,6mm. Þessi húðun er sú sterkasta sem er möguleg í aluzinki í dag. Að auki er efnið svo með svokallaðri antifingerprint húð ofan á alusinkinu. Litaða efnið okkar er 0,5mm og er jafnframt aluzink sem síðan er grunnað og litað með PVDF húðun sem er mun sterkari gagnvart veðrun og sólarljósi en gamla Pólýester húðunin. Kosturinn við að hafa aluzink undir litnum er ótvíræður þar sem endar eru mun betur varðir og ef efnið rispast þá ryðgar ekki í farið..Við höfum verið með þetta efni í 10 ár án nokkurra vandkvæða. Þykktin 0,5mm er meira en nóg til að standast það álag sem fylgir lagningu bárujárnsins og 0,5mm aluzink hefur mun lengri líftíma en t.d 0,6mm galviniserað járn sem svo er litað.

Við erum einnig með ólitað MagiZink, en það er hágæða stál frá Þýskalandi með 310mg. þykkri magnesíum og zink húðun.

Eftirfarandi litir eru í boði fyrir aluzink og galv bárujárn: Aluzink: RAL9010 RAL6020 RAL9005 RAL7011 RAL3009. Galv: RAL7016  RAL9007

Eftirfarandi litir eru til í báruáli: RAL9010 RAL9007 RAL7011 RAL7016 (væntanlegt)

 Til að panta eða fá tilboð í bárujárn er hægt að senda tölvupóst á bara@stjornublikk.is

Image

Ólitað aluzink

Image

Magnelis

Image

Galvaniserað stál

Image

Magi-Zink (NÝTT)

Image

Silfurgrátt 9007 (ál og galv)

Image

Hvítt 9010 (aluzink og ál)

Image

Koxgrátt 7011 (aluzink og ál)

Image

Svart 9005 (aluzink)

Image

Rautt 3009 (aluzink)

Image

Grænt 6020 (aluzink)

Image

RAL 7016 (galv)

Image

Með því að smella á myndina hér til hægri má sjá úrvalið af lagervörum sem við eigum ávalt til. Þessar lagervörur eru alltaf til í öllum aluzink litunum, sem og ólituðu aluzinki. Lagervörurnar eru seldar í þriggja metra lengjum.

Einnig eigum við alltaf til kúlukili og skotrennur á lager í öllum litum.

Image