Stjörnublikk ehf.
Stjörnublikk var stofnað af Finnboga Geirssyni árið 1990 og er því 25 ára í ár. Fyrirtækið byrjaði sem hefðbundin blikksmiðja og hefur síðan vaxið og dafnað. Nú er Stjörnublikk stærsta blikksmiðja landsins með mikla sérhæfingu í loftræstikerfum, klæðningu hitaveituröra og almennri blikksmíði ásamt smíði og uppsetningu á læstum klæðningum.
Árið 2008 keypti Stjörnublikk fyrirtækið Timbur og stál og hefur síðan haslað sér völl í framleiðslu á bárujárni og ýmiskonar klæðningum ásamt framleiðslu á steypustyrktarjárni. Árið 2013 keypti Stjörnublikk nýja bárujárnsvél og ári síðar var keypt ný fullkomin beygjuvél fyrir steypustyrktarjárn og er Stjörnublikk nú með tvær slíkar vélar. Nú í ár 2015 hefur Stjörnublikk fest kaup á nýrri bárujárnsvél sem ætluð er til framleiðslu á smábáru og trapisuklæðningum og mun fyrirtækið nú jafnframt framleiða báruál.